My nice chubby son

Fyrir þremur árum fórum við litla stórfjölskyldan saman til Lanzarote. 

Dag einn undir lok ferðarinnar fóru sonur minn og amma hans saman í búðarferð.

Í raftækjaverzlun einni sá tólf ára gamall drengurinn kíki sem freistaði. Búðareigandinn, sem að sögn var af indversku spreki sprottinn, rann á peningalyktina og hófst handa við að hamast í krakkanum. Amma hans (sonar míns, ekki Indverjans), lét lítið fyrir sér fara og fylgdist kímin með aðförunum. Sonur minn er prúttari mikill og var þar að auki orðinn peningalítill þegar þarna var komið sögu svo hann reyndist þeim indverska erfiður ljár í þúfu. Að lokum tilkynnti stráksi að hann ætti bara því miður ekki svona mikla peninga og gæti því ekki greitt uppsett verð fyrir kíkinn.

Þá skiptir engum togum að Mr. Shivaji vindur sér að ömmu drengsins og segir hátt og snjallt með pínku pirringi við hana: "You give him more money, you pay for him, you are his mother! He is your nice chubby son!"

...

Síðan þá hafa þessi fleygu orð verið talsvert notuð af okkur mæðgum, sérstaklega þegar sonur minn gerir okkur stoltar, sem hann gerir mjög reglulega. Needless to say þá á tilvísunin í holdafar hans ekki við lengur þar sem barnið er eins og ljósastaur í laginu. Hún átti hinsvegar vel við á sínum tíma og hefur sá kuflklæddi örugglega haldið að hann væri að hrósa "móður" drengsins fyrir velsældina.

Ljósastaurinn minn tók myndirnar sem fylgja þessari frétt á mbl.is í dag.

My nice chubby son.


mbl.is Þyrla notuð við ræningjaleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigga

You give him more money... nice chubby son... hahahhahahhahahhaa kræst :) en allavega til lukku með drenginn, lúnkinn er hann :)

Anna Sigga, 7.5.2008 kl. 17:31

2 identicon

Já, það er líka spurning hvað ég á eftir að heita þegar ég vakna á morgun ... hvað ætli það verði.

Eitt er víst, strákarnir í skólanum eiga eftir að gera grín að þessu út vikuna.

Kv,

STEINN Vignir Kristjánsson 

Sveinn Vignir Kristjánsson (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 18:22

3 identicon

Á ég ekki líka soldið í honum ??? Ha ?     Mr. Nice Chubby !!!! That´s it!     En þetta er flott hjá honum.  Hann á framtíðina fyrir sér.   En að öðru - ekki minna mikilvægu,   mikið er ég fegin að þér var loksins orðið mál.    Fáum við að vita um árangurinn frá helginni?

Ollamaggan

Ólafía Margrét (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 19:51

4 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Synir okkar sækja á sömu mið - ég vissi alltaf að við ættum fleira sameiginlegt en "fyrir utan á".

Viltu reyna að verða vinur minn aftur? Ég kann það ekki. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 8.5.2008 kl. 22:02

5 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Og ég keppti líka í sundi - fyrir nokkrum árum.

Til hamingju með afrekin. kv. 

Helga R. Einarsdóttir, 8.5.2008 kl. 22:05

6 Smámynd: Rúnarsdóttir

ASV: Takk, okkur fannst þetta líka bilað fyndið á sínum tíma!

SVK: Elska þig

OMG: Jú audda átt þú íonum líka, þú sást hann fyrst

HRE: Við gætum örugglega gert langan lista yfir sameigindi ef við settumst niður með kaffibolla. Það er hugmynd ... 

Rúnarsdóttir, 9.5.2008 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband